Fréttir | 11. nóv. 2020

Heimsþing kvenleiðtoga

Forseti og forsetafrú taka þátt í Heimsþingi kvenleiðtoga, Reykjavík Global Forum, sem samtökin Women Political Leaders standa árlega fyrir í Reykjavík. Þingið var að þessu sinni stafrænt vegna heimsfaraldursins. Forseti flutti stutta kveðju og forsetafrú tók þátt í samtali (byrjar á 01:53) um jafnrétti kynjanna með Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, stjórnarformanni samtakanna, og Silvana Koch-Mehrin, stofnanda þeirra og forseta.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar