Fréttir | 11. nóv. 2020

Samtök ferðaþjónustunnar

Forsetahjón afhenda Nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar árið 2020. Verðlaunin eru veitt fyrir athyglisverðar nýjungar í ferðaþjónustu og er þeim ætlað að hvetja frumkvöðla og fyrirtæki í ferðaþjónustu innan samtakanna til nýsköpunar. Í ár voru verðlaunin veitt íslenskri ferðaþjónustu í heild sinni, í ljósi þeirra einstæðu erfiðleika og áskorana sem fyrirtæki og einyrkjar í geiranum hafa þurft að glíma við. Í stað hátíðarviðburðar eins og venja er var tilkynnt um verðlaunin í myndbandi sem horfa má á hér og hér.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar