• Forsetahjón ásamt nýjum sendiherra Kanada, Jeannette Menzies, og eiginmanni hennar Gilbert Percy.
Fréttir | 25. feb. 2021

Sendiherra Kanada

Forseti tekur á móti nýjum sendiherra Kanada, Jeannette Menzies, sem afhendir trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um gott samstarf ríkjanna tveggja og sameiginlega hagsmuni og sjónarmið, ekki síst á sviði mannréttinda, kynjajafnréttis og loftslagsmála. Þá var rætt um málefni Norðurslóða og stöðu þeirra í heimi alþjóðastjórnmála. Loks var rætt um Vestur-Íslendinga, arfleifð þeirra og þennan þráð sem tengir Ísland og Kanada svo traustum böndum. Menzies sendiherra er fædd og uppalin í Winnipeg og þekkir vel til sögu Íslendinga í Vesturheimi.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar