Fréttir | 24. sep. 2021

Koma svo!

Forseti á fund með Hauki Valtýssyni, formanni Ungmennafélags Íslands, og Valdimar Gunnarssyni, framkvæmdastjóra Ungmennasambands Kjalarnesþings. Rætt var um nýja skýrslu UMFÍ og ÍSÍ og átakið Koma svo! Í því er ætlunin að hvetja fólk á öllum aldri á jákvæðan hátt til hreyfingar og íþróttaiðkunar á eigin forsendum, sjálfu sér og samfélaginu öllu til hagsbóta. Einnig var rætt um aldarafmæli UMSK á næsta ári og leiðir til að minnast þeirra tímamóta.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar