Fréttir | 21. okt. 2021

Ræðismaður Íslands í Indónesíu

Forseti sæmir Maxi Gunawan, ræðismann Íslands í Indónesíu, riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir þjónustu hans við hagsmuni Íslendinga og framlag til að styrkja og efla tengsl Íslands og Indónesíu. Kjörræðismenn gegna mikilvægu, ólaunuðu hlutverki í utanríkisþjónustu Íslands, sérstaklega í þeim löndum þar sem ekki er íslenskt sendiráð. Maxi Gunawan hefur verið ræðismaður Íslands í Indónesíu í 14 ár eða frá árinu 2007.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar