• Ljósmyndir: Jón Svavarsson.
Fréttir | 09. nóv. 2021

Dagur gegn einelti

Forseti flytur ávarp og afhendir verðlaun á degi gegn einelti sem haldinn er í skólum landsins. Forseti og Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra sóttu viðburð í tilefni dagsins sem samtökin Heimili og skóli stóðu að í Rimaskóla í Reykjavík. Nemendur skólans sýndu skemmtiatriði og ræður voru fluttar. Þá voru hvatningarverðlaun Heimilis og skóla veitt. Þau hlaut í ár Guðríður Aadnegard, náms- og starfsráðgjafi við Grunnskólann í Hveragerði.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar