• Forsetahjón ásamt fulltrúum og starfsfólki bæjarstjórnar.
  • Á skrifstofu Grindavíkurbæjar.
  • Á fundi eldri borgara í Kviku, menningarhúsi Grindavíkur.
  • Á fundi eldri borgara í Kviku, menningarhúsi Grindavíkur.
  • Rætt við unga starfsmenn Vinnuskóla Grindavíkur.
  • Forsetahjón heimsækja íbúa hjúkrunarheimilisins Víðihlíðar í Grindavik.
  • Forseti á hjúkrunarheimilinu Víðihlið í Grindavík.
  • Forsetahjón á Bryggjunni í Grindavík.
  • Forsetahjón skoða sögu aflakónga á vetrarvertíð á Bryggjunni í Grindavík.
Fréttir | 03. ágú. 2022

Grindavík

Forsetahjón heimsækja Grindavík og ræða við heimamenn um jarðhræringar sem valdið hafa usla á Reykjanesskaga og viðbúnað við þeim. Fannar Jónasson bæjarstjóri tók á móti forsetahjónum á skrifstofum Grindavíkurbæjar þar sem þau ræddu við fulltrúa bæjarstjórnar og starfsfólk. Næst litu þau við hjá ungmennum að störfum á vegum Vinnuskóla Grindavíkurbæjar. Þaðan var haldið niður á höfn þar sem forsetahjón heimsóttu skrifstofur útgerðarinnar Þorbjörns og fylgdust með löndun úr frystitogaranum Hrafni Sveinbjörnssyni. Forsetahjón voru gestir á vikulegum fundi eldri borgara í Kviku, menningarhúsi Grindavíkur. Þau litu við í versluninni Blómakoti, þar sem tjón varð í skjálftunum og snæddu að því loknu hádegisverð ásamt heimilisfólki á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð. Heimsókninni í Grindavík lauk með kaffisopa á Bryggjunni þar sem rætt var við starfsfólk og gesti.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar