Forsetasetrið að Bessastöðum verður opið almenningi í tilefni Menningarnætur, laugardaginn 20. ágúst. Forseti Íslands mun taka á móti gestum og býðst fólki að skoða staðinn milli klukkan 13:00 og 16:00. Síðast var opið hús á Bessastöðum þann 18. júní og heimsóttu ríflega þúsund manns forsetasetrið af því tilefni.
Bessastaðastofa var byggð á 18. öld og á sér merka sögu. Í húsinu má sjá sýnishorn gjafa, sem forseta hafa borist, og fornleifar í kjallara veita innsýn í búsetu á Bessastöðum allt frá landnámstíð. Auk Bessastaðastofu munu gestir geta skoðað móttökusal og bókhlöðu forsetasetursins. Þá mun fyrsti forsetabíllinn, Packard bifreið Sveins Björnssonar, standa í hlaði en bifreiðin er árgerð 1942.
Starfsmenn embættis forseta og aðstoðarmenn veita upplýsingar um staðinn og verða gestum til aðstoðar.