Fréttir | 26. jan. 2023

G-vítamín

Forseti tekur á móti fulltrúum Geðhjálpar og þiggur skammt af G-vítamíni. Á þorranum býður Geðhjálp 30 skammta af G-vítamíni, daglegum ráðleggingum sem birtast á Facebook og Instagram og er ætlað að bæta geðheilsu. Hollráðin byggja á Geðorðunum 10 og á 14 Lífsorðum Héðins Unnsteinssonar og Þórdísar Rúnarsdóttur. Í ár býður Geðhjálp auk þess upp á sérstaka G-vítamín ilmdropa sem nota má samhliða daglegri geðrækt.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar