Embætti forseta Íslands hefur ráðið í tvö störf sem auglýst voru í desember. Þetta eru störf fjármála- og rekstrarstjóra og sérfræðings, sem kemur í stað starfs skrifstofustjóra sem lagt hefur verið niður.
Sigríður Björk Gunnarsdóttir hefur verið ráðin í starf fjármála- og rekstrarstjóra embættisins. Hún er með BS próf í hagfræði frá Háskóla Íslands og með kennsluréttindi sem framhaldsskólakennari. Sigríður hefur víðtæka reynslu af fjármálastjórn, rekstri og mannauðsmálum. Undanfarin fimm ár hefur hún starfað sem rekstrarstjóri Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands þar sem hún bar ábyrgð á fjármálum, áætlanagerð og daglegum rekstri. Áður var hún framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Samgöngustofu og sat auk þess í framkvæmdastjórn hennar. Hún bar ábyrgð á fjármálum Samgöngustofu, upplýsingatækni og alþjóðlegu samstarfi, auk þess að leiða viðamikil umbótaverkefni. Þar áður var Sigríður forstöðumaður rekstrardeildar Póst- og fjarskiptastofnunar. Hún bar ábyrgð á fjármálum, upplýsingatækni og mannauðsmálum, auk þess að sitja í framkvæmdastjórn.
Jón Karl Helgason hefur verið ráðinn í starf sérfræðings hjá embættinu. Hann er með BA próf í almennri bókmenntafræði og íslensku frá Háskóla Íslands og doktorspróf í samanburðarbókmenntum frá University of Massachusetts í Bandaríkjunum. Jón Karl hefur víðtæka reynslu af blaðamennsku, ritstjórn, útgáfu, háskólakennslu og rannsóknum og hefur einnig tekið þátt í viðamiklum alþjóðlegum verkefnum á sínu fræðasviði. Jón Karl er prófessor við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands þar sem hann hefur starfað í tæpa tvo áratugi. Áður var hann ritstjóri hjá bókaforlaginu Bjarti, vefstjóri Kaupþings og framkvæmdastjóri ReykjavíkurAkademíunnar. Þar áður starfaði hann í áratug sem dagskrárgerðarmaður hjá Ríkisútvarpinu og annaðist m.a. ritstjórn bókmenntaefnis á Rás 1. Jón Karl er höfundur fjölda fræðibóka og ritgerða, bæði á íslensku og ensku. Hann er einnig reyndur þýðandi og hefur átt sæti í ýmsum stjórnum og ráðum á vettvangi íslensks menningarlífs. Undanfarið hefur Jón Karl verið í tímabundnu leyfi frá Háskóla Íslands og sinnt starfi sérfræðings á skrifstofu forseta Íslands.
Embætti forseta Íslands býður Sigríði Björk og Jón Karl velkomin og kveður með þakklæti þá starfsmenn sem hverfa á braut eftir að hafa þjónað embættinu af alúð um langa hríð. Embættið er einnig þakklátt þeim fjölda hæfileikaríkra umsækjenda sem sýndu þessum störfum áhuga og óskar þeim velfarnaðar.