Fréttir | 08. maí 2024

Heillaóskir til nýkjörins biskups

Forseti sendir séra Guðrúnu Karls Helgu­dóttur, nýkjörnum biskupi Íslands, heillaóskir. Í kveðju sinni óskaði forseti Guðrúnu velfarnaðar á vandasömum vettvangi og kvaðst jafnframt vænta þess að samstarf embættis forseta og Biskupsstofu yrði áfram heilladrjúgt.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar