Hátt í þrjátíu íslensk listaverk úr safnkosti Listasafns Íslands prýða sali Bessastaða og veita innlendum og erlendum gestum innsýn í íslenska listasögu.
Skoða listaverkin á vef Listasafns Íslands
Bessastaðir á Álftanesi eiga sér merka sögu. Á þrettándu öld var staðurinn í eigu Snorra Sturlusonar, seinna varð hann aðsetur æðstu embættismanna Danakonungs í landinu og á nítjándu öld var helsta menntastofnun íslensku þjóðarinnar þar. Frá því um miðja tuttugustu öld hafa Bessastaðir verið embættisbústaður þjóðhöfðingjans. Elsta húsið á staðnum er svokölluð Bessastaðastofa sem er nú tengd við móttökusal og þjónustuhús. Í næsta nágrenni eru Bessastaðakirkja og íbúðarhús forseta.
Allt frá lýðveldisstofnun hefur Listasafn Íslands lánað listaverk íslenskra myndlistarmanna til Bessastaða. Fljótlega eftir að Halla Tómasdóttir var kjörin forseti árið 2024 valdi hún í samvinnu við Listasafnið það úrval íslenskrar myndlistar sem nú prýðir forsetasetrið. Var haft í huga að auka breidd verkanna þannig að þau spanna lengra tímabil í íslenskri listasögu en áður, auk þess sem hlutfall verka eftir konur og karla er jafnara. Hér neðar á síðunni er unnt að skoða salarkynni á Bessastöðum og fræðast nánar um sögu staðarins.








