
Halla Tómasdóttir er fædd í Reykjavík 11. október 1968. Hún var kjörin forseti Íslands árið 2024. Halla er önnur konan til að gegna embættinu.

Embætti forseta
Forseti Íslands er þjóðhöfðingi og æðsti embættismaður lýðveldisins. Forseti er kjörinn til fjögurra ára í senn. Halla Tómasdóttir var kjörin forseti 1. júní 2024 og tók formlega við embætti 1. ágúst sama ár.
Fjölskylda
Móðir Höllu er Kristjana Sigurðardóttir þroskaþjálfi en faðir Höllu, Tómas Björn Þórhallsson pípulagningameistari, lést árið 2008. Halla er alin upp í Kópavogi og á tvær systur. Hún er gift Birni Skúlasyni og eiga þau tvö börn, Tómas Bjart og Auði Ínu.

Nám
Halla er með BS-gráðu í viðskiptafræði frá Auburn-háskóla í Montgomery, Alabama og MBA-gráðu í stjórnun og alþjóðlegum samskiptum frá Thunderbird School of Global Management í Phoenix, Arizona. Hún var einnig í rannsóknartengdu framhaldsnámi í leiðtogafræðum við Cranfield-háskóla á Englandi.

Ferill
Að loknu námi í Bandaríkjunum starfaði Halla við stjórnun og mannauðsmál hjá bandarísku fyrirtækjunum M&M/Mars og Pepsi Cola og hjá Íslenska útvarpsfélaginu. Þaðan lá leiðin til Háskólans í Reykjavík (HR) þar sem Halla tók þátt í uppbyggingu starfseminnar og kenndi frumkvöðla- og leiðtogafræði. Hún kom meðal annars á fót Stjórnendaskóla og Símenntun HR og leiddi þar einnig verkefnið Auður í krafti kvenna. Halla tók við starfi framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs Íslands árið 2006. Ári síðar stofnaði hún ásamt Kristínu Pétursdóttur verðbréfafyrirtækið Auður Capital. Halla var í sex ár forstjóri alþjóðlegu samtakanna The B Team sem hafa það markmið að efla góða stjórnarhætti og stuðla að réttlæti og velsæld fólks, umhverfis og samfélags.

Áherslur
Frá því að Halla Tómasdóttir tók við embætti forseta Íslands hefur hún lagt áherslu á mikilvægi jafnréttis og friðar, virðingar og kærleika í samskiptum og mikilvægi kynslóðasamtals og þverfaglegs samstarfs. Henni er umhugað um stöðu og líðan barna og unglinga og hefur hvatt til þess að ræktuð séu skjólbelti gegn stafrænu áreiti og upplýsingaóreiðu. Hún leggur sig fram um að leiða ólíka aðila saman til að ræða lausnir og leiðir í þágu bætts samfélags.
Maki forseta er Björn Skúlason. Hann er heilsukokkur og með meistaragráðu í stjórnunarsálfræði.
Sjá nánar
Maki forseta er Björn Skúlason. Hann er heilsukokkur og með meistaragráðu í stjórnunarsálfræði.
Sjá nánar