Skrifstofa forseta

Embætti forseta Íslands er með skrifstofu í sögufrægu húsi, Staðastað, við Sóleyjargötu 1 í Reykjavík.

Forseti ver hluta af vinnutíma sínum á Staðastað. Þar hefur líka hluti af starfsliði embættisins vinnuaðstöðu. Meðal verkefna starfsfólks þar er að vera forseta til aðstoðar, skipuleggja viðburði og heimsóknir, viðhalda málaskrá, svara erindum fyrir hönd forseta, annast um vef embættisins og halda utan um fjármál þess.
Saga Staðastaðar
Staðastað lét Björn Jónsson, ráðherra og ritstjóri, byggja árið 1912. Auk þess að vera forystumaður í íslenskum stjórnmálum á sinni tíð var Björn faðir Sveins Björnssonar, fyrsta forseta lýðveldisins. Elísabet Sveinsdóttir, kona Björns, ólst upp á Staðastað á Snæfellsnesi og af þeim bæ dregur húsið nafn sitt. Síðar eignaðist Kristján Eldjárn þetta hús svo óhætt er að segja að það sé nátengt sögu þjóðhöfðingja Íslands.
Arkitekt Staðastaðar var Rögnvaldur Ólafsson sem var frumkvöðull í íslenskri byggingarlist. Viðbyggingu við húsið Fjólugötumegin hannaði Gunnlaugur Halldórsson. Á gömlum ljósmyndum sést að þegar húsið var byggt var það í útjaðri Reykjavíkur.
Starfsfólk hjá embætti forseta
Sif Gunnarsdóttir
forsetaritari
Arna Kristín Sigfúsdóttir
starfsmaður á skrifstofu
Atli Már Sigurðsson
húsvörður
Birna Þórunn Pálsdóttir
fjármálastjóri
Helga Kr. Einarsdóttir
í leyfi
Jón Karl Helgason
sérfræðingur
Ríkarður Már Ríkarðsson
bílstjóri
Sandra Hrönn Traustadóttir
starfsmaður á Bessastöðum
Sif Gunnarsdóttir | forsetaritari | |
Arna Kristín Sigfúsdóttir | starfsmaður á skrifstofu | |
Atli Már Sigurðsson | húsvörður | |
Birna Þórunn Pálsdóttir | fjármálastjóri | |
Helga Kr. Einarsdóttir | í leyfi | |
Jón Karl Helgason | sérfræðingur | |
Ríkarður Már Ríkarðsson | bílstjóri | |
Sandra Hrönn Traustadóttir | starfsmaður á Bessastöðum |