Fálkaorðan

Fálkaorðan er æðsta heiðursmerki sem íslenska ríkið veitir mönnum. Forseti Íslands er stórmeistari orðunnar og sæmir einstaklinga heiðursmerkinu að tillögu Orðunefndar. Einstaklingar sem vilja tilnefna orðuþega þurfa að gera það formlega með bréfi sem stílað er á Orðunefnd.

Forseti sæmir íslenska ríkisborgara fálkaorðunni tvisvar á ári, 1. janúar og 17. júní, og eru orðuþegar á bilinu 10 til 15 í hvort skipti. Að auki sæmir forseti innlenda og erlenda ríkisborgara fálkaorðu á ýmsum tímum og af ýmsu tilefni. Þá eru í gildi reglur milli Íslands og nokkurra Evrópuríkja um gagnkvæmar orðuveitingar í tengslum við opinberar heimsóknir þjóðhöfðingja.
Forseti Íslands kveður fimm einstaklinga í Orðunefnd eftir tillögu forsætisráðherra og sitja nefndarmenn að jafnaði í sex ár. Sjötta sætið í nefndinni er skipað af forsetaritara sem er orðuritari. Nefndin tekur við tilnefningum til fálkaorðunnar og leggur mat á þær. Hún gerir síðan tillögur um orðuhafa til forseta sem tekur endanlega ákvörðun. Öllum er frjálst að senda Orðunefnd tilnefningar að orðuhöfum.
Tilnefningar til Orðunefndar
Tilnefningar til Orðunefndar skulu vera bréflegar og undirritaðar af einum eða fleiri aðilum. Fjöldi undirskrifta ræður ekki úrslitum um orðuveitingu. Í tilnefningu skal tilgreina helstu æviatriði viðkomandi, kennitölu og hvað það er sem bréfritari telur að sá eða sú sem tilnefnd er hafi gert til að verða sæmd fálkaorðunni. Einnig þarf að koma fram kenntitala, heimilisfang, símanúmer og netfang þess sem tilnefnir (eða er málsvari hópsins ef fleiri en einn undirrita bréfið). Ekki er tekið við tilnefningum sem berast rafrænt. Ekki er tekið við tilnefningum frá nánum skyldmennum þess eða þeirrar sem tilnefnd er. Bréfið skal senda á:
Orðunefnd
Sóleyjargötu 1
101 Reykjavík
Fálkaorðan á sér merka sögu og um hana gilda margháttaðar reglur sem koma meðal annars fram í forsetabréfi um orðuna.
Sjá nánar
Stig fálkaorðunnar eru fimm: Riddari, stórriddari, stórriddari með stjörnu, stórkrossriddari og stórkrossriddari með keðju. Band orðunnar er heiðblátt en jaðrar hvítir með hárauðri rönd. Sá sem sæmdur er fálkaorðu í fyrsta sinn skal að jafnaði hljóta lægsta stig hennar, riddarakross. Karlar bera riddarakross á brjóstinu vinstra megin í hnappagati á kjóljakka eða á móts við það. Konur festa bandið með krossinum á vinstra barm.

Orðuhafaskrá hefur að geyma nöfn allra sem hlotið hafa fálkaorðu.
Sjá nánar