Björn Skúlason

Björn Skúlason er fæddur í Reykjavík 20. júlí, 1973. Hann er heilsukokkur og með meistaragráðu í stjórnunarsálfræði.

Fjölskylda
Björn er sonur Esterar Guðlaugar Karlsdóttur og Skúla Magnússonar. Björn ólst upp í Grindavík, hann stundaði þar íþróttir frá unga aldri og lék meðal annars knattspyrnu með liðum Grindavíkur og KR í Reykjavík. Þau Halla Tómasdóttir gengu í hjónaband árið 2004 og eiga saman tvö börn, Tómas Bjart og Auði Ínu.
Nám
Björn er heilsukokkur frá Natural Gourmet Institute í New York og með meistaragráðu í stjórnunarsálfræði frá University of Essex á Englandi.
Ferill
Að loknu námi í Bandaríkjunum starfaði Björn hérlendis hjá Tryggingamiðstöðinni, Íslandsbanka og Auði Capital. Um hríð rak hann veisluþjónustu í Kaupmannahöfn en tók síðan við starfi framkvæmdastjóra Nóatúns. Undanfarin ár hefur Björn rekið heilsufyrirtækið just björn sem framleiðir náttúruleg fæðubótarefni úr norrænum sjávarafurðum.
Áherslur
Forsetahjón leggja sameiginlega áherslu á gildi velsældar og heilbrigði íslensku þjóðarinnar. Björn Skúlason er verndari eftirfarandi samtaka og viðurkenninga:




