Fáni og skjaldarmerki

Forseti Íslands hefur sérstakan fána sem er meðal annars notaður á forsetasetrinu á Bessastöðum og á bifreið forseta. Forsetinn hefur einnig eigið skjaldarmerki sem er meðal annars notað á bréfsefnum embættisins.

Fáni forseta Íslands er tjúgufáni, þ.e. þjóðfáninn klofinn að framan. Þar sem armar krossmarksins mætast á fánanum er skjaldarmerki Íslands og skjaldberar í hvítum, ferhyrndum reit. Notkun fána forseta Íslands fer eftir ákvörðun forsetaembættisins en hann er meðal annars dreginn að húni á Bessastöðum og við Staðastað á opinberum fánadögum.
Skjaldarmerki forseta Íslands er skjöldur sem að lögun og lit er eins og skjöldurinn í skjaldarmerki Íslands en þar sem armar krossmarksins mætast er hvítur, ferhyrndur reitur og í honum eru skjaldarmerki Íslands og skjaldberar.

Skjaldarmerki forseta
Forsetaúrskurður frá 1944
Sjá vef Alþingis