Viðurkenningar

„Bakvið þann árangur sem hver og einn hefur náð er barn sem fékk að takast á við áskoranir, barn sem fékk hvatningu og rými til að hreyfa sig og þroskast.“

Forseti tekur oft þátt í að veita viðurkenningar til einstaklinga og hópa sem skarað hafa fram úr í íslensku þjóðlífi. Í vissum tilvikum eru þessar viðurkenningar tengdar forsetaembættinu með beinum hætti. Þar á meðal er fálkaorðan, æðsta heiðursmerki sem íslenska ríkið veitir mönnum, og er forseti stórmeistari hennar.












