Forseti heimsækir sumarbúðir KFUM og KFUK í Vindáshlíð og ræðir við flokk unglingsstúlkna sem þar dvelur. Tinna Rós Steinsdóttir, formaður stjórnar sumarbúðanna, tók á móti forseta og kynnti starfið fyrir henni. Þá svaraði forseti spurningum frá stúlkunum og snæddi loks með þeim kvöldverð í mötuneyti sumarbúðanna. Stúlkurnar eru á aldrinum 13 til 16 ára og eru á fimm daga námskeiði í Vindáshlíð. Þar hafa verið starfræktar sumarbúðir fyrir stúlkur frá árinu 1947.

Fréttir
|
13. ágú. 2024
Vindáshlíð
Aðrar fréttir
Fréttir
|
29. maí 2025
Ísland á Expo 2025
Forseti tekur þátt í þjóðardegi Íslands í Osaka.
Lesa frétt
Fréttir
|
27. maí 2025
Orðuveiting í Japan
Forseti sæmir tvo japanska ríkisborgara riddarakrossi.
Lesa frétt