• Íslensku keppendurnir á Paralympics í París ásamt forsetahjónum. Ljósmynd/Una Sighvatsdóttir
  • Sonja Sigurðardóttir ólympíufari ásamt forseta. Ljósmynd/Una Sighvatsdóttir.
  • Thelma Björg Björnsdóttir ólympíufari ásamt forseta. Ljósmynd/Una Sighvatsdóttir.
  • Róbert Ísak Jónsson ólympíufari ásamt forseta. Ljósmynd/Una Sighvatsdóttir.
  • Róbert Ísak Jónsson ólympíufari ásamt forseta. Ljósmynd/Una Sighvatsdóttir.
  • Ingeborg Eide Garðarsdóttir kúluvarpari ásamt forseta. Ljósmynd/Una Sighvatsdóttir
  • Ingeborg Eide Garðarsdóttir kúluvarpari ásamt forseta. Ljósmynd/Una Sighvatsdóttir
  • Már Gunnarsson ólympíufari ásamt forseta. Ljósmynd/Una Sighvatsdóttir.
  • Már Gunnarsson ólympíufari og blindrahundurinn Max ásamt Birni Skúlasyni, eiginmanni forseta. Ljósmynd/Una Sighvatsdóttir.
  • Íslenski Paralympics-hópurinn, keppendur og fylgdarlið, ásamt forsetahjónum. Ljósmynd/Una Sighvatsdóttir
Fréttir | 14. ágú. 2024

Ólympíufarar kvaddir

Forsetahjón taka á móti íslensku þátttakendunum á Ólympíumóti fatlaðra 2024, Paralympics í París, aðstandendum þeirra og fulltrúum frá Íþróttasambandi fatlaðra. Forsetahjón óskuðu íslenska hópnum góðrar ferðar og velfarnaðar á mótinu í lok ágúst.

Fimm keppendur hafa tryggt sér þátttökurétt á leikunum og munu keppa fyrir Íslands hönd. Það eru þau Már Gunnarsson, Róbert Ísak Jónsson, Sonja Sigurðardóttir og Thelma Björg Björnsdóttir, sem öll keppa í sundi, og Ingeborg Eide Garðarsdóttir sem keppir í kúluvarpi. Forsetahjón munu sækja Ólympíumótið sem hefst þann 28. ágúst í París.

 

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar