Forseti ræðir við konur í íslenskum sjávarútvegi á viðburði þeirra í Grósku í Reykjavík. Forseti átti samtal við Birnu Einarsdóttur sem situr í ráðgjafaráði Félags kvenna í sjávarútvegi. Félagið var stofnað árið 2013 í því skyni að styrkja og efla konur í greinum tengdum sjávarútvegi með samstöðu og hjálpsemi að leiðarljósi. Félagar þess eru nú 345 talsins. Árlega er haldinn viðburður í tengslum við aðalfund félagsins þar sem efnt er til samtals við konur sem skarað hafa fram úr á sínu sviði.
Fréttir
|
17. sep. 2024
Konur í sjávarútvegi
Aðrar fréttir
Fréttir
|
04. okt. 2024
Heiðursverðlaun RIFF
Forseti býður til móttöku og afhendir heiðursverðlaun.
Lesa frétt
Fréttir
|
02. okt. 2024
Forvarnardagurinn 2024
Forseti ávarpar málþing og ræðir við ungmenni.
Lesa frétt
Fréttir
|
01. okt. 2024
Ræðismenn Íslands erlendis
Forsetahjón taka á móti um 140 kjörræðismönnum Íslands.
Lesa frétt