• Sviatlana Tsikhanouskaya ræðir við forseta á Staðastað. Ljósmynd: Yuli Shyshko
  • Sviatlana Tsikhanouskaya og ráðgjafar hennar ræða við forseta á Staðastað. Ljósmynd: Yuli Shyshko
  • Sviatlana Tsikhanouskaya ræðir við forseta á Staðastað. Ljósmynd: Yuli Shyshko
Fréttir | 30. okt. 2024

Sviatlana Tsikhanouskaya

Forseti á fund með Sviatlönu Tsikhanouskayu, leiðtoga lýðræðishreyfingarinnar í Belarús, á skrifstofu forseta við Staðastað í Reykjavík. Tsikhanouskaya er sérstakur gestur Norðurlandaráðsþings 2024 sem fram fer á Íslandi. Hún var ræðumaður á þinginu í dag og ræddi meðal annars um mikilvægi stuðnings norrænu landanna fyrir lýðræðisstarfið í Belarús.

Á fundinum með forseta var rætt um framtíðarhorfur Belarús, þróun mála og stöðu mannréttinda þar í landi frá því Aleksander Lúkasjenkó var lýstur sigurvegari í forsetakosningum þar árið 2020. Tsikhanouskaya hefur allar götur síðan leitt lýðræðishreyfinguna úr útlegð í Litháen og hafa Norðurlönd og Eystrasaltsríkin stutt kröfu lýðræðishreyfingarinnar um frjálsar kosningar.

Fundinn sátu einnig Francisak Viacorka og Dzianis Kuchynski, ráðgjafar Tsikhanouskayu, auk ráðgjafa forseta.

 

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar