Forseti tók á móti fr. Angela Dube-Gobotswang, nýjum sendiherra Botsvana, sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Í kjölfarið áttu þær góðan fund um samskipti landanna. Fr. Angela Dube-Gobotswang er með fyrirsvar gagnvart Íslandi en hefur aðsetur í Stokkhólmi.