Forseti tók á móti hr. Raúl Delgado Concepción, nýjum sendiherra Kúbu, sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Í kjölfarið áttu þau góðan fund um samskipti landanna. Hr. Raúl Delgado Concepción er með fyrirsvar gagnvart Íslandi en hefur aðsetur í Stokkhólmi.