Fréttir | 02. jan. 2025

Samúðarkveðja til íbúa Suður-Kóreu

Forseti sendir samúðarkveðju til Choi Sang-mok, starfandi forseta Suður-Kóreu, vegna mannskæðs flugslyss sem þar varð þann 29. desember. Alls létust 179 manns þegar farþegaflugvél brotlenti við alþjóðaflugvöllinn í Muan. Í kjölfarið lýstu stjórnvöld yfir sjö daga þjóðarsorg í landinu.

Í bréfi forseta vottar hún starfandi forseta og suðurkóresku þjóðinni allri samúð og segir að hugur íslensku þjóðarinnar sé með þeim sem eigi um sárt að binda vegna slyssins.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar