• Forseti ávarpar gesti á hátíðarkvöldverði Klúbbs matreiðslumeistara. Ljósmynd: Mummi Lú.
  • Forseti ávarpar hátíðarkvöldverð Klúbbs matreiðslumeistara. Ljósmynd: Mummi Lú
  • Forstahjón heiðursgestir á hátíðarkvöldverði Klúbbs matreiðslumeistara. Ljósmynd: Mummi Lú
  • Forsetahjón ásamt Þóri Erlingssyni, forseta Klúbbs matreiðslumeistara og framkvæmdastjóra Íslenska kokkalandsliðsins. Ljósmynd: Mummi Lú
  • Frá hátíðarkvöldverði Klúbbs matreiðslumeistara. Ljósmynd: Mummi Lú
  • Frá hátíðarkvöldverði Klúbbs matreiðslumeistara. Ljósmynd: Mummi Lú
  • Forsetahjón heiðursgestir á hátíðarkvöldverði Klúbbs matreiðslumeistara. Ljósmynd: Mummi Lú
Fréttir | 11. jan. 2025

Klúbbur matreiðslumeistara

Forsetahjón eru heiðursgestir á hátíðarkvöldverði Klúbbs matreiðslumeistara sem fram fer í Hörpu í Reykjavík þar sem forseti flytur ávarp. Hátíðarkvöldverðurinn er aðalfjáröflun klúbbsins þar sem fremstu matreiðslumenn landsins taka höndum saman og framreiða margrétta hátíðarmatseðil.

Allur ágóði kvöldsins rennur til klúbbsins með það að markmiði að efla íslenska matargerðarlist og styðja við klúbbfélaga, keppnina um kokk ársins og Íslenska kokkalandsliðið, sem býr sig nú undir næsta heimsmeistaramót í matreiðslu sem fram fer í Lúxemborg árið 2026.

Sú hefð hefur skapast á liðnum árum að forseti Íslands sitji hátíðarkvöldverðinn sem heiðursgestur og flytji þar ávarp.

Sjá pistil forseta: Hátíðarkvöld Klúbbs matreiðslumeistara

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar