Fréttir | 01. feb. 2025

95 ára afmæli Kvenfélagasambands Íslands

Forseti tekur á móti fulltrúum Kvenfélagasambands Íslands í tilefni af 95 ára afmæli sambandsins. Var það stofnað þann 1. febrúar 1930 og allar götur síðan hafa kvenfélagskonur minnst þeirra tímamóta með ýmsum hætti. Á 80 ára afmæli félagsins árið 2010 var síðan ákveðið að útnefna stofndaginn, 1. febrúar, sem „Dag kvenfélagskonunnar."

Í tilefni 95 ára afmælisins bauð stjórn sambandsins til hátíðlegs aðalfundar á Hallveigarstöðum í Reykjavík en að því loknu bauð forseti hópnum til móttöku á Bessastöðum og komu þangað, auk stjórnar, formenn héraðssambanda um land allt ásamt heiðursfélaga Kvenfélagssambandsins.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar