Fréttir | 07. feb. 2025

Safnanótt 2025

Forsetahjón taka á móti gestum á opnu húsi á Bessastöðum í tilefni af Safnanótt. Viðburðurinn var fjölsóttur og lögðu ríflega 800 manns leið sína á forsetasetrið meðan húsið var opið á milli klukkan 18:00 til 22:00.

Gestir gátu skoðað Bessastaðastofu og móttökusalinn og nutu leiðsagnar nemenda í sagnfræði við Háskóla Íslands og starfsmanna embættisins auk þess sem starfsmaður frá Listasafni Íslands gerði grein fyrir þeim málverkum sem prýða nú staðinn eftir að úrval íslenskrar myndlistar þar var endurnýjað í haust.

Myndasafn frá opnu húsi má sjá hér.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar