• Anna Guðrún og Guðfinna Th. Aðalgeirsdóttir, leiðbeinandi Clémence Daigre, ásamt Ingunni Jónsdóttur, framkvæmdastjóra Háskólafélags Suðurlands. Ljósmynd: sunnlenska.is/Guðmundur Karl
  • Anna Katarzyna Wozniczka og Aneta Figlarska tóku við menntaverðlaununum fyrir hönd fjölskyldusviðs Árborgar. Hér eru þær ásamt forseta og Antoni Kára Halldórssyni, formanni stjórnar SASS. Ljósmynd: sunnlenska.is/Guðmundur Karl
Fréttir | 12. feb. 2025

Vísindi á Suðurlandi

Forseti flytur ávarp á árlegum hátíðarfundi Vísinda- og rannsóknarsjóðs Suðurlands og afhendir styrki úr sjóðnum. Við sama tilefni voru Menntaverðlaun Suðurlands afhent. Fundurinn fór fram í sal Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi.

Úr vísinda- og rannsóknarsjóðnum var úthlutað 1,5 milljónum króna og skiptust þær jafnt á milli tveggja styrkþega.

Anna Guðrún Þórðardóttir, doktorsnemi við Landbúnaðarháskóla Íslands, fékk styrk vegna rannsóknarverkefnisins „Erfðaleg aðlögun byggs að krefjandi umhverfisaðstæðum". Meginmarkmið verkefnisins er að stuðla að þróun byggyrkja sem eru aðlöguð kaldtempruðum umhverfisskilyrðum líkt og á Íslandi.

Þá fékk Clémence Daigre, doktorsnemi við Háskóla Íslands, styrk til verkefnisins „IceAq". Markmið þess er að auka skilning á breytingum í vatnskerfum jökla, sérstaklega hvernig vatn flyst frá jökulyfirborði, niður í rennsliskerfi við jöklulbotn og þaðan í grunnvatnskerfið þar undir.

Íslenskunámskeið fyrir foreldra með fjölmenningarbakgrunn

Loks voru Menntaverðlaun Suðurlands afhent, en að þeim standa Samtök sunnlenskra sveitarfélaga. Að þessu sinni komu þau í hlut fjölskyldusviðs Árborgar, sem staðið hefur fyrir hagnýtum íslenskunámskeiðum fyrir foreldra barna á grunnskólaaldri með fjölmenningarlegan bakgrunn.

Markmið verkefnisins er að bjóða foreldrum grunnskólanema með fjölmenningarlegan bakgrunn ókeypis íslenskunámskeið þar sem þeir kynnast helstu hugtökum og efla orðaforða sem tengist skólastarfi, en rannsóknir sýna að tungumálaörðugleikar geta hindrað þátttöku foreldra í skólastarfi.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar