Forsetahjón taka á móti fulltrúum Krabbameinsfélags Íslands sem afhenda fyrstu sökkapörin fyrir mottumars. Hið árlega fjáröflunar- og kynningarátak sem tileinkað er baráttunni gegn krabbameini í körlum hefst þann 27. febrúar.
Þriðji hver karlmaður greinist með krabbamein einhvern tímann á lífsleiðinni. Samkvæmt tölfræðilegri samantekt frá árunum 2019-2023 greindust 1.017 karlmenn árlega með krabbamein og á sama tímabili létust 335 karlmenn árlega úr krabbameinum.
Í ár er áhersla Mottumars á tenginguna á milli lífsstíls og krabbameina. Þannig vill Krabbameinsfélagið vekja athygli á að bæði óheilbrigðar og heilbrigðar lífsvenjur verða til á löngum tíma. Á vef Krabbameinsfélagsins er að finna ýmsan fróðleik þessu tengdu.
Hönnun sokkanna úr smiðju Prins Póló
Á hverju ári framleiðir og selur Krabbameinsfélagið Mottumarssokka með nýrri hönnun. Í ár eru sokkarnir hannaðir af Berglindi Häsler, ekkju Svavars Péturs og eiganda Havarí, í samstarfi við Björn Þór Björnsson (Bobby Breiðholt). Björn hefur undanfarin ár tekið að sér að viðhalda safni myndrænna sköpunarverka Svavars Péturs sem lést úr krabbameini árið 2022. Svavar Pétur var best þekktur sem tónlistarmaðurinn Prins Póló. Í ár koma Mottumarssokkarnir einnig í barnastærðum og þremur viðhafnarútgáfum, sem eru einungis fáanlegar í verslun og vefverslun Krabbameinsfélagsins.
Sala hefst 27. febrúar í verslun og vefverslun Krabbameinsfélagsins, hjá Havarí og á hátt í 400 sölustöðum um land allt. Sölutímabilið er út 23. mars.
Allur ágóði af sölu Mottumarssokkunum rennur til starfsemi Krabbameinsfélagsins sem miðar að því að færri fái krabbamein, fleiri læknist, lifi lengi og njóti lífsins – með og eftir krabbamein. Öll starfsemi félagsins byggir á styrkjum frá einstaklingum og fyrirtækjum og Mottumars er ein af lykilstoðunum.