• Andri Snær Magnason, Kumi Naidoo, Ólafur Elíasson og Alexandre Naulot ásamt forseta.
Fréttir | 28. feb. 2025

Kumi Naidoo

Forseti á fund með Kumi Naidoo, sem leiðir frumkvæði að Sáttmála gegn útbreiðslu jarðefnaeldsneytis (e. Fossil Fuel Nonproliferation Treaty Initiative). Naidoo var áður yfirmaður Greenpeace og síðar Amnesty International. Rætt var um markmið sáttmálans og leiðir til að fá ríki heims til að draga hraðar úr notkun jarðefnaeldsneytis. Naidoo telur að þar geti Ísland gegnt stóru hlutverki og er hér á landi ásamt Alexandre Naulot, framkvæmdastjóra framtaksins í Evrópu.

Fundinn sátu einnig listamennirnir Ólafur Elíasson og Andri Snær Magnason.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar