• Forseti ræðir við Aminu J. Mohammed, varaframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York.
  • Forseti ræðir við Aminu J. Mohammed, varaframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna,og Jessicu Sibley, forstjóri bandaríska tímaritsins TIME, í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York.
  • Forseti ræðir við Aminu J. Mohammed, varaframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna,og Jessicu Sibley, forstjóri bandaríska tímaritsins TIME, í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York.
Fréttir | 18. mars 2025

Kvennanefnd Sameinuðu þjóðanna

Forseti tekur þátt í viðburði í tengslum við árlegan Kvennanefndarfund Sameinuðu þjóðanna (e. Commission on the Status of Women) sem nú stendur yfir í New York í Bandaríkjunum. Þetta er 69. fundur Kvennanefndarinnar og er höfuðáherslan á endurskoðun og mat á framkvæmd Pekingsáttmálans sem markaði kaflaskil í réttindabaráttu kvenna þegar hann var einróma samþykktur af aðildarríkjum SÞ árið 1995.

Af því tilefni bauð Amina J. Mohammed, varaframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, forseta Íslands að taka þátt í hliðarviðburði sem ber heitið Women Rise for All: Turning Hope into Action, sem fram fór í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna. Forseti og varaframkvæmdastjórinn opnuðu viðburðinn með samtali um þróun mála síðustu 30 ár, þ.e. síðan Pekingsáttmálinn var samþykktur. Þá var rætt um forystuhlutverk kvenna til að ná heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun (SDGs) fyrir árið 2030. Umræðunum stýrir Jessica Sibley, forstjóri bandaríska tímaritsins TIME.

Viðburðurinn var sýndur í beinu streymi og má sjá upptökuna hér.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar