• Ljósmynd/Listasafn Íslands
  • Ljósmynd/Listasafn Íslands
  • Ljósmynd/Listasafn Íslands
  • Ljósmynd/Listasafn Íslands
  • Ljósmynd/Listasafn Íslands
  • Ljósmynd/Listasafn Íslands
  • Ljósmynd/Listasafn Íslands
  • Ljósmynd/Listasafn Íslands
Fréttir | 03. apr. 2025

Tungumálavinir á Norðurlöndum

Forseti flytur ávarp og opnar norræna barnasýningu í Listasafni Íslands. Sýningin er afrakstur Nordplus verkefnisins SPIN - en það er skammstöfun fyrir Sprogvenner i Norden - kunsten at forstå hinanden eða Tungumálavinir á Norðurlöndum – listin að skilja hvert annað

Verkefnið byggir á þeirri grunnhugsun að fjöltyngi sé dýrmæt auðlind. Markmið SPIN er að efla næmi fyrir menningarlegum fjölbreytileika og stuðla að inngildingu. Börnunum er gefið færi á að dýpka skilning á eigin tungumála- og menningarlegum fjölbreytileika, sem og jafnaldra sinna á Norðurlöndum.

Nemendur í 6. bekk Háteigsskóla og Melaskóla voru í vikunni gestgjafar jafnaldra sinna frá Danmörku og Færeyjum og tóku þau þátt í opnun sýningarinnar ásamt forseta.

Samstarfsaðilar SPIN verkefnisins eru Listasafn Íslands, Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar, Melaskóli, Háteigsskóli ásamt Eysturskúlin í Þórshöfn í Færeyjum, Skovvangskolen, Kulturkompasset og menningarstofnunin Dokk1 í Árósum í Danmörku.

 

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar