• Forseti tekur á móti hópi barna á leið í alþjóðlegar sumarbúðir CISV. Ljósmynd: CISV á Íslandi
Fréttir | 04. apr. 2025

CISV Alþjóðlegar sumarbúðir barna

Hópur barna á leið erlendis í alþjóðlegar sumarbúðir CISV kemur í heimsókn til Bessastaða og fær mynd með forseta. Forseti Íslands er verndari CISV á Íslandi.

CISV vinnur að því að stuðla að friði í gegnum vináttu og samstarf ólíkra menningarheima, óháð pólitískum eða trúarlegum skoðunum. Tilgangur samtakanna er að auka réttlæti og stuðla að friði í heiminum með því að veita einstaklingum tækifæri til að búa og starfa með fólki af ólíkum uppruna. CISV á Íslandi sendir 60-80 einstaklinga til þátttöku í hinum ýmsu alþjóðlegu verkefnum CISV ár hvert og um 1000 Íslendingar hafa tekið þátt í starfi félagsins.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar