Fréttir | 10. apr. 2025

Þjálfun fyrir úkraínska hermenn

Forsetahjón og Hákon, krónprins Noregs, heimsækja heimavarnardeild norska hersins, HV-12, í Værnes í Þrándheimi. Þar býðst úkraínskum ​​hermönnum öflug þjálfun og menntun frá norskum heimavarnarhermönnum sem er hluti af svo kallaðri Gungne-aðgerð sem sett var á laggirnar í apríl 2023.

Heimsóknin var liður í dagskrá ríkisheimsóknar forseta til Noregs, sem endaði á þriðja degi í Þrándheimi.

Gestirnir fengu kynningu á verkefninu og áherslu norska hersins á áfallahjálp og bætta geðheilsu hermanna. Þá var þeim sýnt dæmi um þá þjálfun sem hermönnum býðst í neyðaraðstoð á vígvelli, með sérstakri hliðsjón af aðstæðum í Úkraínu.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar