Forseti tekur þátt í útskriftarathöfn AWE-frumkvöðlahraðals fyrir konur eða Academy for Woman Entrepreneurs. Háskóli Íslands stendur fyrir frumkvöðlahraðlinum í samstarfi við bandaríska sendiráðið á Íslandi, FKA – félag kvenna í atvinnulífinu og Samtök kvenna af erlendum uppruna. Forseti tók þátt í sófaspjalli með Fidu Abu Libdeh um mikilvægi kvenna í nýsköpun, umhverfi frumkvöðla og þau verðmæti sem felast í frumkvæði og forystu kvenna.
Markmið AWE-frumkvöðlahraðalsins er að efla konur til að þróa áfram sínar viðskiptahugmyndir, bjóða upp á fræðslu og efla tengslanet.