Á öðrum degi opinberrar heimsóknar forseta til Vestmannaeyja heimsóttu þau meðal annars leikskóla, grunnskóla og framhaldsskólann í bænum. Um hádegið sátu þau síðan hádegisverðarfund í boði bæjarstjórnar í Ráðhúsinu.
Dagskráin í dag hófst klukkan 9 á heimsókn í leikskólann Kirkjugerði. Úti á skólalóðinni tók Eyja Bryngeirsdóttir leikskólastjóri og börn í grímubúningum á móti forsetahjónum og fylgdarliði. Gengið var þessu næst um skólahúsið og var starfsemin kynnt fyrir gestum, þar með talið leiðir sem miða að því að auka lýðræði í skólastarfinu. Heimsókninni lauk á því að börn af elstu deildinni sungu tvö lög.
Næst var farið í Framhaldsskóla Vestmannaeyja sem hefur á undanförnum árum markað sér sterka stöðu í kennslu málm- og vélstjórnargreina. Þar tók Helga Kristín Kolbeins skólameistari á móti forseta sem ávarpaði nemendur á sal og ræddi þar meðal annars um verkefnið ,,Riddarar kærleikans”. Í kjölfarið fór fram kynning á verknáminu í skólanum sem hlaut nýlega Íslensku menntaverðlaunin.
Laust fyrir hádegi heimsóttu forsetahjón síðan Grunnskóla Vestmannaeyja - Barnaskólann á Skólavegi. Skólastjórnendur tóku á móti forsetahjónum og fylgdarliði framan við skólann en þar höfðu nemendur með íslenska fána einnig raðað sér upp. Þegar inn var komið kynnti Anna Rós Hallgrímsdóttir, skólastjóri Grunnaskóla Vestmannaeyja - Hamraskóla verðlaunaverkefnið ,,Kveikjum neistann” sem hefur mótað skólastarfið á liðnum árum og vakið verðskuldaða athygli. Að því loknu var fimmti bekkur heimsóttur en hann hefur verið að vinna að áhugaverðu verkefni sem tengist sögu forsetaembættisins.
Í hádeginu var forsetahjónum og fylgdarliði boðið til hádegisverðarfundar í Ráðhúsi Vestmannaeyjabæjar ásamt bæjarstjórn og bæjarritara. Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri kynnti helstu áherslur og áskoranir í rekstri bæjarins en eftir það var almenn umræða um viðfangsefni, áskoranir og framtíðarsýn bæjarstjórnar.