95 ára afmæli Kvenfélagasambands Íslands
1. febrúar 2025
Forseti tekur á móti fulltrúum Kvenfélagasambands Íslands.

Forseti tekur á móti fulltrúum Kvenfélagasambands Íslands í tilefni af 95 ára afmæli sambandsins. Var það stofnað þann 1. febrúar 1930 og allar götur síðan hafa kvenfélagskonur minnst þeirra tímamóta með ýmsum hætti. Á 80 ára afmæli félagsins árið 2010 var síðan ákveðið að útnefna stofndaginn, 1. febrúar, sem „Dag kvenfélagskonunnar."
Í tilefni 95 ára afmælisins bauð stjórn sambandsins til hátíðlegs aðalfundar á Hallveigarstöðum í Reykjavík en að því loknu bauð forseti hópnum til móttöku á Bessastöðum og komu þangað, auk stjórnar, formenn héraðssambanda um land allt ásamt heiðursfélaga Kvenfélagssambandsins.
Fleiri fréttir

16. nóvember 2026
Traust, samvinna og ábyrgð
Forseti tekur þátt í heimsþingi kvenleiðtoga og átaki á vegum BÍL.
16. nóvember 2026
Traust, samvinna og ábyrgð

15. nóvember 2026
„Móðurmálið mitt góða ... mjúka og ríka.“
Stiklur úr dagbók forseta.
15. nóvember 2026
„Móðurmálið mitt góða ... mjúka og ríka.“

15. nóvember 2026
„Vinur er sá sem til vamms segir“
Forseti sækir minningarstund um fórnarlömb umferðarslysa.
15. nóvember 2026
„Vinur er sá sem til vamms segir“