Ábyrg ferðaþjónusta
15. janúar 2025
Forseti afhendir hvatningarverðlaun.


Forseti flytur ávarp og afhendir hvatningarverðlaun á Degi ábyrgrar ferðaþjónustu sem er hluti af Ferðaþjónustuviku 2025. Í ár er það fjölskyldufyrirtækið Guðmundur Jónasson ehf - GJ Travel sem hlýtur verðlaunin. Að auki voru tilnefnd fyrirtækin Midgard Adventure og Local Guide of Vatnajökull.
Þetta er í sjöunda sinn sem hvatningarverðlaun Ábyrgrar ferðaþjónustu eru veitt, en verkefnið var sett af stað að frumkvæði Íslenska ferðaklasans og Samtaka ferðaþjónustunnar í lok árs 2016. Í dag er verkefnið í eigu alls stoðkerfis ferðaþjónstunnar með áherslu á að efla hæfni og þekkingu stjórnenda þegar kemur að sjálfbærri og nærandi ferðaþjónustu.
Leiðandi fyrirtæki í 94 ár
Í umsögn dómnefndar í ár segir að Guðmundur Jónasson ehf - GJ Travel hafi í 94 ár verið leiðandi í ábyrgri ferðaþjónustu með virðingu fyrir íslenskri náttúru að leiðarljósi. Um árabil hafi fyrirtækið lagt áherslu á að lágmarka kolefnisspor, styðja við nærsamfélagið og tryggja öryggi gesta og starfsmanna.
Það er mat dómnefndar að ábyrgir og sjálfbærir rekstrarhættir endurspeglist í öllu sem fyrirtækið tekur sér fyrir hendur og er sjálfbærnin fléttuð inní starfsmannamenningu fyrirtækisins þar sem starfsfólk fær reglulega þjálfun og kemur að því að móta stefnu fyrirtækisins. Lögð er rík áhersla á öryggismenningu innan fyrirtækisins sem dómnefnd lagði til grundvallar í sínu máli.
Við mat dómnefndar var einnig horft til samfélagslegrar ábyrgðar GJ travel og hversu öflugt félagið hefur verið í samstarfi við stoðkerfi ferðaþjónustunnar. Þar má nefna sem dæmi Jöklarannsóknafélag Íslands, Rauða kross Íslands, KSÍ og Landsbjörg. Loks er þess getið a vikulega sér GJ travel um akstur eldri borgara um höfuðborgarsvæðið til verslana Bónuss.
Að lokinni verðlaunaafhendingu tók við ráðstefna um leiðir til ábyrgrar ferðaþjónustu. Viðburðurinn fór fram í Grósku í Reykjavík.
Fleiri fréttir

21. apríl 2026
Gervigreind til góðs
Forseti efnir til samtals um samfélagsleg áhrif gervigreindar.
21. apríl 2026
Gervigreind til góðs

20. apríl 2026
„Öflug hreyfing er óstöðvandi“
Forseti hittir nemendur Alþjóðlega jafnréttisskólans.
20. apríl 2026
„Öflug hreyfing er óstöðvandi“

16. apríl 2026
Velsæld á tímum gervigreindar
Forseti og Jesper Brodin ræða leiðtogahæfni og gervigreind á Velsældarþingi.
16. apríl 2026
Velsæld á tímum gervigreindar