Aðalframkvæmdastjóri UNESCO
17. október 2024
Forseti fundar með Audrey Azoulay.


Forseti fundar með Audrey Azoulay, aðalframkvæmdastjóra Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNESCO. Hún er hér á landi í tengslum við ráðstefnuna Hringborð norðurslóða sem fer nú fram í Hörpu í Reykjavík. Rætt var um þá sérstöðu UNESCO að leiða saman fulltrúa ríkja á sviði menningar og vísinda. Einnig var rætt um aukna vanlíðan ungmenna víða um heim og möguleika á nýjum samfélagssáttmála til að stuðla að aukinni velsæld ungs fólks til framtíðar. Þá var rætt um loftslagsbreytingar, átökin í Úkraínu, Gaza og víðar og getu alþjóðakerfisins til að takast á við stórar áskoranir. Loks greindi aðalframkvæmdastjórinn frá áhuga UNESCO fyrir fjölgun verndarsvæða í íslenskri náttúru.
Fleiri fréttir

16. nóvember 2026
Traust, samvinna og ábyrgð
Forseti tekur þátt í heimsþingi kvenleiðtoga og átaki á vegum BÍL.
16. nóvember 2026
Traust, samvinna og ábyrgð

15. nóvember 2026
„Móðurmálið mitt góða ... mjúka og ríka.“
Stiklur úr dagbók forseta.
15. nóvember 2026
„Móðurmálið mitt góða ... mjúka og ríka.“

15. nóvember 2026
„Vinur er sá sem til vamms segir“
Forseti sækir minningarstund um fórnarlömb umferðarslysa.
15. nóvember 2026
„Vinur er sá sem til vamms segir“