Afmælismálþing Stígamóta
6. mars 2025
Forseti tekur þátt í samtali um útrýmingu kynferðisofbeldis.

Forseti tekur þátt í málþingi í tilefni af 35 ára afmæli Stígamóta, grasrótarsamtaka sem berjast gegn kynferðisofbeldi og veita aðstoð fyrir fólk sem hefur verið beitt kynferðisofbeldi. Samtökin voru stofnuð á Alþjóðlegum baráttudegi kvenna þann 8. mars 1989. Þá ákváðu íslenskar konur frá fjölda kvennasamtaka og félaga að helga daginn baráttunni gegn kynferðisofbeldi á Íslandi.
Hóparnir kynntu starfsemi sína á fjölmennum baráttufundi sem haldinn var í Hlaðvarpanum 8. mars 1989 en þar var ákveðið að stofna Samtök kvenna gegn kynferðisofbeldi. Fyrsta verkefni samtakanna var því að koma á ráðgjafar- og upplýsingamiðstöð fyrir konur og börn sem höfðu verið beitt kynferðisofbeldi. Stígamót, staðurinn þar sem stígar mætast og þaðan sem leiðirnar geta verið margar, hóf síðan starfsemi sína 8. mars 1990.
Í tilefni 35 ára afmælis samtakanna var efnt til málþingsins „Útrýmum kynferðisofbeldi" og fór það fram í Vigdísarstofnun. Við setningu málþingsins tók forseti þátt í arinspjalli við Drífu Snædal, talskonu Stígamóta, þar sem rætt var um næstu skref í baráttunni gegn ofbeldi, kynferðislegu og kynbundnu, og hvernig hægt sé að ala ungar kynslóðir upp í jafnrétti og virðingu.
Að því loknu tóku við pallborðsumræður við Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra og Heiðu Björgu Hilmisdóttur borgarstjóra sem ræddu stöðu málaflokksins við Drífu Snædal. Á málþinginu sagði einnig Sigrún Elsa Stefánsdóttir ráðgjafi hjá Stígamótum, sögu sína og París Anna Bergmann fjallaði um unga fólkið og framtíðina.
Fleiri fréttir

12. október 2026
„Ímyndunarafl er dásamlegt orð“
Samtal kvenleiðtoga á Imagine Forum.
12. október 2026
„Ímyndunarafl er dásamlegt orð“

12. október 2026
Ákall um ábyrga forystu
Hópur leiðtoga tekur þátt í samtali í Höfða.
12. október 2026
Ákall um ábyrga forystu

11. október 2026
„Gerum heiminn að griðastað“
Forseti tekur þátt í lokaviðburði Samtals í Hörpu.
11. október 2026
„Gerum heiminn að griðastað“