Afvopnunarmál
19. maí 2025
Forseti tekur á móti alþjóðlegum háskólahópi.

Forseti tekur á móti nemendum og kennurum alþjóðlegs námskeiðs í samningatækni og afvopnunarmálum. Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands stendur að náminu, sem ber heitið The Arms Control Negotiations Academy (ACONA) og hefur verið styrkt af forsætisráðuneytinu undanfarin ár.
Á hverju ári tekur ACONA á móti nýjum hópi sérfræðinga sem koma víða að með fjölþættan bakgrunn og útskrifast eftir 12 mánuði. Að þessu sinni eru þátttakendur á námskeiðinu meðal annars frá Bandaríkjunum, Rússlandi, Serbíu, Mexíkó, Gambíu, Þýskalandi og Japan.
Forseti tók á móti nemendunum við upphaf vikudvalar þeirra á Íslandi og ræddi við þau um frið og öryggismál.
Fleiri fréttir

16. nóvember 2026
Traust, samvinna og ábyrgð
Forseti tekur þátt í heimsþingi kvenleiðtoga og átaki á vegum BÍL.
16. nóvember 2026
Traust, samvinna og ábyrgð

15. nóvember 2026
„Móðurmálið mitt góða ... mjúka og ríka.“
Stiklur úr dagbók forseta.
15. nóvember 2026
„Móðurmálið mitt góða ... mjúka og ríka.“

15. nóvember 2026
„Vinur er sá sem til vamms segir“
Forseti sækir minningarstund um fórnarlömb umferðarslysa.
15. nóvember 2026
„Vinur er sá sem til vamms segir“