Alzheimersamtökin
17. september 2024
Eiginmaður forseta tekur við verndarahlutverki.

Björn Skúlason, eiginmaður forseta, gerist verndari Alzheimersamtakanna og heimsækir af því tilefni Seigluna í Lífsgæðasetri St. Jósefsspítala í Hafnarfirði. Seiglan er þjónustumiðstöð fyrir fólk með heilabilun og aðstandendur þeirra. Ragnheiður Ríkharðsdóttir, formaður Alzheimersamtakanna á Íslandi, tók á móti Birni sem kynnti sér starfsemi Seiglunnar og ræddi við starfsfólk og þjónustuþega.
Björn tekur við verndarahlutverkinu af Elizu Reid, fyrrverandi forsetafrú, sem var verndari Alzheimersamtakanna í forsetatíð Guðna Th. Jóhannessonar.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar