Andlát Jimmys Carters
2. janúar 2025
Forseti vottar samúð vegna fráfalls fyrrverandi Bandaríkjaforseta.

Forseti sendir samúðarkveðju vegna fráfalls Jimmys Carters, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, sem lést 29. desember hundrað ára að aldri. Carter var 39. forseti Bandaríkjanna og gegndi embætti á árunum 1977 til 1981.
Í bréfi forseta, sem stílað er á umsjónarfólk stofnunarinnar Carter Center, biður forseti fyrir samúðarkveðju fyrir hönd íslensku þjóðarinnar til aðstandenda og vina Carters og til starfsfólks stofnunarinnar, sem hjónin Jimmy og Rosalynn Carter komu á fót að lokinni forsetatíð hans, árið 1982. Á vegum stofnunarinnar vann Carter áfram að alþjóðamálum með því markmiði að stuðla að friði á átakasvæðum og standa vörð um lýðræði og mannréttindi í heiminum.
Forseti segist í samúðarbréfinu vona að fjölskylda Carters finni styrk í sorginni með því að minnast af stolti alls þess sem hann kom til leiðar á langri ævi og þeirrar forystu sem hann sýndi í mannúðarmálum á heimsvísu. Þá segist forseti þakklát fyrir að hafa notið þess heiðurs að hitta Jimmy Carter í eigin persónu í fyrri störfum sínum og að hafa átt gott samstarf við stofnun hans.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar