Annasamir dagar í Peking
15. október 2025
Forseti heldur til Shanghai.


Þriggja daga dagskrá forseta Íslands í Peking lauk í morgun. Auk þess að taka þátt í alþjóðlegri ráðstefnu um jafnréttismál og funda með Xi Jinping, forseta Kína, heimsótti hún jarðvarmafyrirtækið Arctic Green Energy og tók þátt í fjölmennum viðburði í íslenska sendiráðinu í borginni.
Fyrirtækið Arctic Green Energy, sem stofnað var af Hauki Harðarsyni, hefur borað yfir eitt þúsund borholur í leit að heitu vatni í Kína og komið þar að fjölda jarðhitaverkefna. Eftir hádegi á mánudag hittu forseti og sendiherra Íslands í Peking, Þórir Ibsen, forsvarsmenn fyrirtækisins. Um kvöldið sat forseti síðan kvöldverð í sendiherrabústaðnum með forystufólki í jafnréttismálum.
Eftir hádegi á þriðjudag, að loknum fundinum með Xi Jinping, fóru forseti Íslands og fylgdarlið í skoðunarferð um Forboðnu borgina í Peking. Forseti veitti einnig íslensku og kínversku fjölmiðlafólki viðtöl. Síðdegis átti hún síðan samtal við fjölmiðlakonuna Kelsey Cheng í samkomusal íslenska sendiráðsins. Þær ræddu meðal annars um áskoranir í umhverfismálum og samstarf Kína og Íslands á sviði jarðhita. Færri en vildu komust að til að hlýða á samtalið en í hópi gesta voru m.a. fulltrúar kínverskra fjölmiðla sem gert hafa opinberri heimsókn forseta góð skil.
Á þessum fjórða degi heimsóknar sinnar heldur forseti til Shanghai. Þar situr hún m.a. kvöldverð með fulltrúum íslenskra fyrirtækja sem eru með starfsemi í Kína og flytur ávarp á alþjóðlegri viðskiptaráðstefnu um umhverfismál og ábyrga stjórnarhætti.
Fleiri fréttir

9. október 2026
Þversagnir gervigreindarinnar krufnar
Forseti tekur þátt viðburði með Tristan Harris og Raskin-hjónum.
9. október 2026
Þversagnir gervigreindarinnar krufnar

9. október 2026
Leiðtogafundur í Höfða á sunnudag
Forseti býður alþjóðlegum hópi til samtals um frið, traust og þróun tækninnar.
9. október 2026
Leiðtogafundur í Höfða á sunnudag

6. október 2026
„Þetta má aldrei gerast aftur“
Forseti opnar sýningu um kjarnorkuárásirnar á Hiroshima og Nagasaki 1945.
6. október 2026
„Þetta má aldrei gerast aftur“