Ásgeirsbikarinn
13. apríl 2025
Forseti afhendir Ásgeirsbikarinn við Laugardalslaug.


Forseti afhendir Ásgeirsbikarinn við Laugardalslaug. Bikarinn er nefndur í minningu Ásgeirs Ásgeirssonar, forseta Íslands 1952-1968, en hann var mikill sundáhugamaður og sótti gömlu laugarnar í Laugardal reglulega í sinni forsetatíð. Ásgeirsbikarinn er farandgripur, sem veittur er árlega fyrir besta afrek á Íslandsmeistaramóti í 50 metra laug, á vegum Sundsambands Íslands, samkvæmt stigatöflu FINA.
Að þessu sinni hreppti bikarinn Snorri Dagur Einarsson, Sundfélagi Hafnarfjarðar, fyrir 100 metra bringusund á 1:00,67 sem gefur 824 stig.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar