Áskoranir í loftlagsmálum
3. september 2025
Forseti á aðalfundi Grænvangs.


Forseti tók þátt í samtali um loftlagsmál og grænar lausnir við Sigurður Hannesson í upphafi aðalfundar Grænvangs í Grósku. Í máli sínu lagði forseti áherslu á mikilvægi þess að stjórnvöld, atvinnulíf og almenningur væru samstíga í þessum mikilvæga málaflokki og vörðuðu saman leið til framtíðar.
Grænvangur er samstarfsvettvangur atvinnulífs og stjórnvalda sem stuðlar að framþróun í loftslagsmálum og grænum lausnum. Á liðnu ári þekktist forseti boð um að vera verndari Grænvangs og sagði þá meðal annars: „Það er keppikefli allra þjóða að halda hlýnun jarðar innan við 1,5 gráður. Það er stórt verkefni sem verður ekki leyst nema að við höfum hugrekki til að fara nýjar leiðir, tala saman og vinna saman þvert á greinar, þjóðir og kynslóðir.“
Sigurður Hannesson, sem er framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, er formaður stjórnar Grænvangs en forstöðumaður Grænvangs er Nótt Thorberg.
Fleiri fréttir

12. október 2026
„Ímyndunarafl er dásamlegt orð“
Samtal kvenleiðtoga á Imagine Forum.
12. október 2026
„Ímyndunarafl er dásamlegt orð“

12. október 2026
Ákall um ábyrga forystu
Hópur leiðtoga tekur þátt í samtali í Höfða.
12. október 2026
Ákall um ábyrga forystu

11. október 2026
„Gerum heiminn að griðastað“
Forseti tekur þátt í lokaviðburði Samtals í Hörpu.
11. október 2026
„Gerum heiminn að griðastað“