Áttræðisafmæli Svíakonungs
29. apríl 2026
Forsetahjón taka þátt í hátíðarhöldum í Stokkhólmi.

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, og maki hennar, Björn Skúlason, halda í dag til Stokkhólms og taka á morgun þátt í hátíðarhöldum í tilefni af 80 ára afmæli Karls XVI. Gústafs Svíakonungs.
Að morgni fimmtudagsins 30. apríl sækja forsetahjónin hátíðarmessu í Slottskyrkan en að henni lokinni heldur afmælisdagskráin áfram í konungshöllinni. Kl. 14.00 er gestum boðið af borgarráði Stokkhólms til hádegisverðar í ráðhúsi borgarinnar. Afmælishátíð konungsins lýkur síðan í konungshöllinni með hátíðarkvöldverði sem hefst kl. 19.30.
Karl Gústaf varð þjóðhöfðingi Svíþjóðar árið 1973 og er sá konungur sem lengst hefur setið í því embætti þar í landi. Til afmælihátíðar hans koma þjóðhöfðingjar allra Norðurlanda og fjöldi annarra þjóðarleiðtoga og gesta.
Fleiri fréttir

12. október 2026
„Ímyndunarafl er dásamlegt orð“
Samtal kvenleiðtoga á Imagine Forum.
12. október 2026
„Ímyndunarafl er dásamlegt orð“

12. október 2026
Ákall um ábyrga forystu
Hópur leiðtoga tekur þátt í samtali í Höfða.
12. október 2026
Ákall um ábyrga forystu

11. október 2026
„Gerum heiminn að griðastað“
Forseti tekur þátt í lokaviðburði Samtals í Hörpu.
11. október 2026
„Gerum heiminn að griðastað“