Samtal fer fram um land allt
10. október 2026
Ljósmyndir: Undirbúningshópar Samtals um land allt.
Forseti ávarpar þátttakendur um land allt.

Forseti ávarpar þátttakendur í Samtali frá Bessastöðum.






Hægt er að sjá upptöku af beinu streymi frá Samali á YouTube.
Sjá nánar.
Forseti sendi þátttakendum í verkefninu Samtali kveðjur í beinu streymi frá Bessastöðum. Hún tók einnig þátt í samtalshring á efri hæð Bessastaðastofu. Með líkum hætti verður streymt frá viðburði í Hörpu kl. 14.00 á morgun, sunnudaginn 11. október. Þar verður afrakstri Samtalsins miðlað til þjóðarinnar í tali og tónum. Viðburðurinn í Hörpu er öllum opinn.
Á liðnum vikum hefur stór hópur fólks, samtaka, skóla og stofnana undirbúið verkefnið Samtal sem fram fór í dag í framhaldsskólum og víðar um land allt. Fjöldi fólks á ólíkum aldri skráði sig til þátttöku. Lykilspurning dagsins var: Hvernig samfélag viljum við skapa saman?
Ungt fólk, sem tók þátt í undirbúningnum, var með beint streymi meðan á Samtali stóð. Við upphaf og lok dagskrárinnar ávarpaði forseti þátttakendur frá efri hæð Bessastaða. Þess má geta að þar bjuggu nemendur og kennarar Bessastaðaskóla á fyrri hluta 19. aldar. Skólinn var eini eiginlegi framhaldsskóli landsins og án efa vettvangur samtals nemenda og kennara um framtíðina.
Lokaviðburður samtals fer fram í Hörpu sunnudaginn 11. október kl. 14.00. Þar verða hugmyndir og sjónarmið úr samtölunum frá laugardeginum dregin saman og miðlað í beinu streymi í tali og tónum.
Meðal þeirra sem lagt hafa hönd á plóginn við undirbúning Samtals eru Samtal - félag til almannaheilla, Bandalag íslenskra skáta, UMFÍ, Félag framhaldsskólanema, Skólameistarafélag Íslands, Landssamband íslenskra stúdenta, Riddarar kærleikans, Heimili og skóli, ráðuneyti, stofnanir, og einstaklingar.
Á vef Samtals má sjá ljósmyndir frá samtalshringjum víða um land.
Sjá nánar.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar