Bjartasta vonin
18. mars 2026
Ljósmyndir: Vignir Daði Valtýsson og Ragnar Visage.
Forseti tekur þátt í afhendingu Íslensku tónlistarverðlaunanna.




Forseti tók þátt í afhendingu Íslensku tónlistarverðlaunanna við hátíðlega athöfn í Silfurbergi í Hörpu. Sara Mjöll Magnúsdóttir djasstónlistarkona var valin bjartasta vonin og afhenti forseti henni verðlaunagrip.
Sara Mjöll, sem leikur jöfnum höndum á píanó og Hammond-orgel, hefur á liðnum árum komið fram með eigin hljómsveitum og er einnig eftirsóttur meðleikari. Árið 2025 steig hún svo fram sem hljómsveitarstjóri með útgáfu fyrstu plötu sinnar, A Place to Bloom. „Metnaður hennar, frumkvæði og framhaldsnám í New York, einni af helstu höfuðborgum djassins, undirstrika að hér er á ferðinni tónlistarkona sem á eftir að láta mikið að sér kveða á komandi árum,” sagði forseti meðal annars við þetta tækifæri.
Á vef Íslensku tónlistarverðlaunanna er hægt að fræðast um verðlaunahafa og tilnefnda listamenn.
Sjá nánar.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar